09. ágúst 2008 klukkan 22:16
Góðann daginn :D
Sorry bloggleysið, ég er bara búin að vera svo upptekinn, fór til La serena svo eyðilagði ég millistikkið mitt á tolvuna og innstungunar svo ég gat ekkert skrifad í minni tölvu :D
En allavegana, þá er ég búin að afreka alveg slatta held ég …., ég dansaði dansinn minn í skólanum! Haha ég var reyndar úber veik , með hósta og læti, og svo kunni ég þennan dans ekkert upp á tíu verð ég ad segja haha, svo þegar ég var búin að dansa þá komst ég að því a ég var með hvítan glanspappír á buxunu (og ég var í svörtum buxum! ) ég kom þó nokkrum til að hlæja með því haha, en svo rugglaðist tónlistin eithvad og dansin í ruggl, en það var samt gaman af þessu :D svo var bara haldið heim á leið í vetrarfrí, ég reyndar seinkaði að fara til La serena því ég var með svo hrikalega mikið og vondann hósta, en ég fór á miðvikudegin og ég var í eina og hálfa viku :D
Það sem ég afrekaði í La serena var að kynnast ótrúlega yndælli fjöldskyldu þau eru bara krútt!! Mamman ekkert smá sæt og mikil gelgja inn í sér ennþá, og var oft inn í herbergi hjá okkur stelpunm :P svo um miðja viku fór hún í fitusog haha :D finns það fyndið þar sem hún var ekkert feit, hún var bara með smá “ástarhöld”, en þessi fjöldskynda er bara yndi. En það sem ég gerði var að ég fór í Casino ekkert smá töff ! :D svo fór ég á ströndina (var samt ekki þa heitt til að skóla sig) fór á götumarkaði og keipti mér hippabuxur :D svo fór ég í moll oft svo höfðum við það stundum kósý og horfðum á DVD og porðuðum popp með SYKRI sem er reyndar alveg ágætt sko get ekki kvartað mikið, en svo komu kvöld sem við forum út og skemmtum okkur og ég kynntiat fullt af fólki og allskonar :D svo var eitt klúbbaparty sem við keyptum armband til að komast inn og við keiptum að að degi til og á armbandinu voru litlir flipar með C1 og P á og P var til að komast inn (P = porta = dyr) og koty tíndi báðum sínum en var samt með armbandið en hún fékk samt ekki að komast inn, þannig ég lét hana fá P-ið mitt og ég mundi bara sýna C en við fengum ekki ad fara inn þó við værum með þetta armband, við vorum svo reiðar, en svo á endanum þá dró hún mig aðeins út úr og skreið undir eithvad grindverk sem var utan um klúbbinn og þannig komumst við inn (við vorum ekki að fara ólöglega við vorum búin að borga og all tog vorum með þetta ljóta armband! ) en það var gaman.
Seinni vikuna mina þarna fékk fjöldskyldan min ítalskan skiptinema sem er algjört krútt hann er ekki sætur en samt algjört krútt hehe, fyndið ad heyra hann tala, hann talar alveg smá spænsku. En svo var komið að leiðarenda á vetrarfríinu og ég þurfti ad fara heim , og fór ég með rútu til Santiago í geggjað þægilegu og stóru sæti :D ( þegar ég fór til La serena var ég í 2 hæða rútu og á efri hæðinni voru svona extra góð sæti og ég sat þar :D ekkert smá gott útsýni þegar við vorum að keyra til la serena, það er reyndar allt eins en samt…. Fallegt :D)
En þegar ég kom til Santiago var Daniela, kærastinn hennar og Felipe bíðandi eftir mér, ég var þá að hitta Felipe bróðir minn í fyrsta skiptið, og við töluðum og töluðum og töluðum út í eitt! Og hann er mjög góður er alltaf ad bjóða mér með eithvert og vill alltaf vera að gera eithvadð og svonna, t.d á föstudagin er hann örugglega að fara til Argentínu með Danlielu systir og kanski mömmu og ég fæ KANSKI að fara með !!1 :D:D:d núna á föstudagin :P vona að ég fái að fara :D
En svo byrjaði bara skólinnn og það var svo gott að sjá Belen mina :D og við töluðum mjööög mikið og é got Trong líka eins og alltaf haha, svo er ég byrjuð að læra cuieka í skólanum mínum til að dansa hann 17 september sem er hátiðardagur Chile :D þannig allt er á fullu í því ,og mun ég fara líka á fimmtudögum eftir skóla með öllum AFS krökkunum að læra meira :D
svo kom smá hræðsla upp hérna þar sem við heldum í smá stund að ég væri búin að vera ólögleg í landinu allan þennan tíma, en þannig var að þegar ég kom allra fyrst til chile þá var mikið af pappa vinnu til að fá chilenst ID til ad segja að ég búi her og er nemandi og eithvad og þurfti ég líka að fá vottorð hjá lögreglunni með nafninu minu og að ég sé frá íslandi , en fyrir stuttu þá var vinkona min að skoða þetta og spurði hvort ég væri frá Írlandi og eg eithvad hahh nei nú , en þá stóð á löggublaðinu að ég væri IRlandesa en ekki ISlandesa þá kom smá kippur því Felipe sagði að þetta væri slæmt en við forum upp á löggustöð í dag og það var allt í góðu þannig séð , eða hún atlar bara að breyta þessu en setja alveg sömu dagsetningu og allt á nýja blaðið :D
en þessa viku er ég búin að vera lítið í skólanum og verð seinnipartinn ekkert mikið, á mánudagin þurfti ég og Trong að fara úr skólanum um half 5 til að fara og sinna smá AFS dóti en við stálumst út um half 4 og forum bar aí bæin eithvad að dunda okkur, svo í dag fór ég ekki í skólan því ég fór að laga þetta löggu mál að ég væri ekki ólögleg hérna, reyndar þó það taki bara 5 mín eða eithvad þá fór ég ekki í skólanum og var ég því með Felipe í allan dag, okkur kemur mjög vel saman við erum bæði svo ruggluð :D en á morgun verð ég bara til hádegis í skólanum því við öll skiptinemarnir erum að fara hitta forseta AFS og erum að fara kynna okkur fyrir honum á spænsku og svonna :D reyndar á fimmtudagin verð ég allan dagin held eg… en svo eins og alltaf er skólinn búinn um hádegið á föstudögum :D
ég er með smá kvef núna, er samt búin að kaupa mér C vitamin era ð verða brjál á þessu.
Helgin min var mjög róleg á föstudagin fór ég út með bróðir minum (og á föstudagin var líka MÍGANDI rigning ég er ekki að að ýkja neitt með að allar götur voru eins og ár!! Það var ekki möguleiki að labba yfir þær eða neitt, það var frekar spes að sjá þetta þar sem maður ser þetta ekki á íslandi þetta var bara ruggl hvað var í gangi þennan dag með rigninguna ! ) en já ég og Felipe forum ú tog forum í hús vina hans og forum svo á Voodoo sem var mjög gaman dansaði mjög mikið :D svo forum við heim um 4 og fengum okkur að borða og svo sváfum við til 3 næsta dag :D
Og a laugardagskvöldið fór ég til Lauru og Maca (systir hennar ) og með Robin og Marco (nýr skiptinemi frá Austurríki) og við borðuðum hamborgara flögur og horðum á DVD svo gisti ég heima hjá Lauru sem var mjög gaman :D
En þetta var bara í rólegrikantinum hjá mér verð ég að segja =)
Veit ekki hvað ég á að segja meira.. mér finnst mamma mín herna miiiklu ánægðri eithvað og ekki alltaf jafn ill í skapinu eftir að Felipe kom heim, held að hann sem gullmolinn hennar mömmu sinnar (hann er Gunnbjörn! ;) hahaha ég er bara prinsessan hennar mömmu hihi ) en mér finnst það gott að hun se ekki alltaf jafn ill :D
En eithvad meira… það er alltaf jafn kalt!! Það fer að hlína í September :D mmmm Sebastian bróðir er að fara flytja heim í næstuviku þannig við munum ÖLL búa herna … 6 krakkar og mamma og pabbi :D og á aldrinum 14 – 25 haha frekar ung og vitlaus oll :D
Mig langar að leika mér smá og gata mig miiikið meira :D því það er svo ódýrt herna :P en ég veit að það mun ekki falla í goðan jarðveg heima svo ég mundi örugglega taka þau öll úr hehe :P svo langar mig í lítið tattú sem er minning frá Chile , eithvað Chilenst, er búin að husa um stjörnu.. þar sem hún táknar mikið hérna í chile, hún er í fánanum og chiledingar nota hana mikið í táknum … en svo veit ég ekki meira eithvad tákvænt… EINHVERJAR HUGMYNDIR =) ???
En ég segi þetta gott í bili
Ég sakna ykkar allra… það stittist í að ég komi heim … um 5 mánuðir!!! Shjii það er ekki neitt!! :o
Elska ykkur
Te kiero muxo! ;**
Te amOooOOooOoooOOOo ;**
(ég bloggaði thetta fyrir 3 dögum, en netid fór af húsinu thegar ég atladi ad setja thetta inn, er nunaá netkaffi thad kemur net eftir helgi, smá upplýsingar ég kom fram í sjónvarpinu á fimmtudagin :D thvi ég var ad lesa upphátt á 50 ára afmæli AFS :D, og ég er að læra að dansa cueca :D)